Kvika banki gerir á hverju ári úttekt á því hvort viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti sé fylgt og hvort stjórnarhættir bankans á hverjum tíma séu í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Stjórnarháttayfirlýsing Kviku banka er gerð í samræmi við ákvæði laga nr. 161/2002 og leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu, útgefnum af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulífsins í febrúar 2021.
Reglum þessum er ætlað að gera grein fyrir þeim siðferðislegu gildum sem stuðst er við í daglegum störfum Kviku banka. Þær eru grunnviðmið góðra viðskiptahátta og ber starfsmönnum að hafa þær að leiðarljósi í samskiptum sínum við viðskiptavini og aðra aðila í tengslum við störf sín fyrir hönd bankans.
Meginmarkmið starfskjarastefnu Kviku banka er að gera bankann að eftirsóknarverðum vinnustað fyrir hæfa og metnaðarfulla einstaklinga og geta byggt upp langtímasamband við starfsfólk.