Lokað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr FrumkvöðlaAuði fyrir árið 2024. Haft verður samband við þá aðila sem hljóta styrk.
Opnað verður fyrir umsóknir í maí fyrir árið 2025.
FrumkvöðlaAuður hvetur konur til athafna með styrkjum til frumkvöðlastarfs þeirra. Sjóðurinn veitir styrki 19. júní ár hvert en verkefnin eru valin af stjórn sjóðisns. Stjórnin áskilur sér einnig rétt til að styrkja verkefni án umsóknar.
FrumkvöðlaAuður er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var af Auði Capital árið 2009. Í upphafi hét stofnunin AlheimsAuður og er markmið hennar að vera góðgerðarsjóður með það að meginstefnu að hvetja konur til athafna og frumkvæðis, einkum í þróunarlöndum. Sjóðurinn hefur þó í seinni tíð litið nær sér í styrkveitingum með áherslu á frumkvöðlastarf kvenna.
Sjóðurinn getur tekið á móti fjárframlögum hvort sem er frá stofnanda eða öðrum sem vilja veita markmiðum hans brautargengi.
Stjórn sjóðsins skipa:
Í umsókn skal vera greinargóð lýsing á verkefninu, markmiði og tilgangi þess, stutt með viðeigandi gögnum s.s. viðskiptaáætlun, upplýsingum um fjármögnun verkefnis og eignarhald. Umsókn skal skilað á netfangið frumkvodlaaudur@kvika.is til og með 1. júní nk.
Þurfir þú aðstoð vegna umsókna eða frekari upplýsingar biðjum við þig að hafa samband hér